„Við erum alltaf að hittast,“ man ég að Sigga Steina sagði í síðasta sinn sem ég sá hana en þá höfðum við hist á förnum vegi þrisvar með örstuttu millibili. Ég man þegar ég kynntist Siggu Steinu fyrst eins og það hefði gerst rétt fyrir það. Þá var hún spænskukennari minn í MH. Hún var einstaklega skemmtilegur kennari, frjó, lifandi og brosmild og hló þegar við vorum með fíflalæti. Ég man brot úr setningum sem hún sagði, tónlist sem hún spilaði. Báðir bræður hennar voru með mér í menntaskóla. Ekki grunaði mig að hún ætti síðar eftir að vera mágkona mín þegar hún tók saman við Jón Hall bróður minn og ekki grunaði mig að ég ætti eftir að verja tíma með þeim á Spáni þar sem ég hafði eiginlega skráð mig í doktorsnám í bókmenntum með enga tungumálakunnáttu í farteskinu nema einmitt menntaskólaspænskuna. Þau bjuggu í brekkunni ofan við barinn og Iðunn dóttir þeirra með þeim og versluðu í smábúðinni hans Julio eins og við og Sólrún dóttir okkar.
Það slitnaði ekki sambandið á milli okkar Siggu þótt leiðir skildu í fjölskyldunni. Ég leitaði til hennar og hún til mín. Ég hélt að hún yrði alltaf spænskukennari en síðan reyndist hún ómetanlegur dagskrárgerðarmaður, með einhverja bestu útvarpsrödd sem til var, óþreytandi í grúski eftir óvenjulegri tónlist frá framandi slóðum. Leiðir okkar lágu saman eftir óteljandi leiðum. Eftir að pabbi dó hélt ég sið hans og fór til Siggu Steinu með örlitla gjöf hvern aðfangadag. Hún var einstaklega hjálpsöm og þegar mömmu fór hrakandi gat ég alltaf beðið, meðal annarra, Siggu að heimsækja hana og sinna henni þegar ég brá mér af bæ. Ég laug blákalt að minni ofurnæmu mömmu ef heimsóknin var óvænt og sagðist ekkert hafa haft með þetta að gera. Enda var Sigga Steina aufúsugestur og alltaf ræktarsöm við fjölskylduna. Stundum hittumst við á kaffihúsum. Hún var alltaf jafn skemmtilegur félagsskapur, blíð, fyndin, með lúmskan húmor og einkennandi spékoppa, en þó var hún ekkert meinleysisgrey og gat bitið ef hún vildi, hún beit bara aldrei mig. Ég beit sjálfur fast fyrir hennar hönd og það gerðu fleiri þegar henni og annarri útvarpskonu var vísað úr starfi án tilefnis, nema þær hafi kannski verið of krítískar í hugsun. Mér sýndist samt að hún hefði fundið sig vel í starfi á bókasafni. Átti einhverju sinni erindi við hana þangað og fannst hún vera heima hjá sér. Sigga Steina var frekar dul. Ég er frekar dulur sjálfur. Það getur verið erfitt að vita hverju slíkt fólk trúir en ég trúi því sem skammtafræðin er farin að segja: Allir tímar eru til í einu. Tíminn er ekki línulegur heldur allur í einni andrá.
Ég votta Iðunni frænku minni og bræðrunum Eiríki og Sverri, vinum mínum, dýpstu samúð mína. Það er enn eins og Sigga Steina sagði þegar ég hitti hana um daginn: „Við erum alltaf að hittast“.