Listamannafélagið Lýsi: Manífestó

Listamannafélagið Lýsi

Manífestó

Lýst er stofnsett listamannafélagið Lýsi. Efni okkar er lýsi. Við höfnum ríkjandi tvíhyggju í listum, þeirri sem samfélagið lítur á sem náttúrulega, tvíhyggjunni sem felst í hugtökunum Framboð og Eftirspurn.

Eftirspurn er tekin út úr myndinni í allri okkar listframleiðslu. Aðeins er til framboð. Mikið framboð. Með því að talan einn gengur upp í allar tölur er þvingandi tvíhyggjan afnumin. Ef „eftirspurn“ er á annað borð til kemur hún okkur ekki við. Ekki öll samfélög í aldanna rás hafa búið við tvíhyggju framboðs og eftirspurnar. Sum þeirra hafa aðeins lagt til framboð og séð til þess að það sem í framboði væri fullnægði þörfum en ekki eftirspurn.

Við lítum á fyrirbærið athygli sem gerbreytt fyrirbæri í þeirri viðsjárverðu samfélagsgerð sem nú rís á Vesturlöndum. Athygli er gjaldmiðill í rísandi lénskerfi sem kalla má athyglisalræði. Athygli hefur ekkert innihald og innihald er framleitt af „content creator“. Athyglin er verkjalyf fyrir fólkið. Þegar öllu er á botninn hvolft breytir hún fólkinu í athyglissjúka og athyglisveitandi þræla, listamönnum í athyglisvélar fyrir meinlausar peningamaskínur og fjölmiðlum í athyglisframleiðendur og athyglisverði þar sem athyglin sjálf er megingildið og farin er auðveldasta leiðin til að virkja varasama orku hennar.

Við sækjumst ekki eftir athygli heldur íhygli, en höfnum engu.

Offramboð er ekki til í okkar huga. Við dælum út listaverkum af þörf, okkar og annarra, ekki vegna eftirspurnar, ekki fyrir athygli.

Lýsi er hollt. Fólk á að taka lýsi, hvort sem því finnst það gott eða ekki.

Svo lengi má góðu venjast að illt þyki.

Helsti óvinur listarinnar eru leiðindi. Og innistæðulaus tilfyndni.

Við erum ekki elíta og ekki andelíta.

Myllumerki félagsins á samfélagsmiðlum er: #ÉgLýsi. Notkun þess er með öllu bönnuð.

Listamannafélagið Lýsi er opið öllum. Við erum kollektív, engum háð, engum skuldbundin. Í félaginu eru meðlimir úr öllum listgreinum. Allir stofnfélagsmenn njóta nafnleyndar, nema einn.

F.h. stofnfélaga

Gímaldin, Hermann Stefánsson