Sagan er lygi. Að nánast öllu leyti. Hún er hugarórar þeirra sem hafa farið með sigur af hólmi eða ímynda sér í dag, þar sem þeir skrifa söguna, að þeir muni nánast örugglega fara með sigur af hólmi. Þá skiptir engu þótt til þess þurfi þeir að sýna af sér tækifærismennsku, óheiðarleika, tuddaskap og uppspuna. […]
bella
Af hverju eru Bítlarnir betri?
10. júní 2024Á hverjum tíma er miðja og jaðar. Miðjan er misstór, stundum er hún risavaxin og jaðarinn að sama skapi agnarsmár, stundum er miðjan pínulítil og jaðarinn ofboðslega stór. Ég sá að ákveðinn Kaktus er farinn að skrifa aftur og gerir það sem hann gerir best, menningarblaðamennsku, en ekki það sem hann er síðri í og […]
Hreinsun
8. júní 2024Ég nennti ekki að hafa vísi að nafni hér á þessu bloggi sem ég skrifa fyrir engan nema sjálfan mig og færði síðustu færslu í drög, eins og ég geri oft. Nær væri að henda inn fullu skema, bókum mínum, þýðingum og verkefnum í vændum, taka til. Þetta er víst til sjálfsauglýsingar en ég nenni […]
Gagnrýnin kynþáttafræði
19. febrúar 2024„Gagnrýnin kynþáttafræði“ er svo sannarlega ekki nýtt fyrirbæri né sætir hún neinum tíðindum. En fyrir þá sem hafa lagt á sig að fylgjast með bandarískum fjölmiðlum er deginum ljósara að fyrirbærið hefur valdið töluverðum usla að undanförnu og rutt sér leið út úr akademískri samræðu yfir í almenna umræðu. Í sem skemmstu máli hefur hver […]
Sögur og saga
14. febrúar 2024Juan Goytisolo aðgreindi einhverju sinni samtímabókmenntir og nútímabókmenntir. Samtímabókmenntir væru betri söluvara og tengdust betur við tíma sinn en nútímabókmenntir væru gjarnan slæm söluvara en teygðu sig fram og aftur í tíma og hefðu sitt mikilvægi, sitt óendanlega mikilvægi. Hann hafði enga fordóma gagnvart samtímabókmenntum en varaði við því að jafnvægi ríkti, samtímabókmenntum væri ekki […]
Og vera svona
13. febrúar 2024Áðan sá ég fortíðina skunda hjá. Núna er hún farin og kemur ekki aftur. Við leituðum vikum, mánuðum, árum og áratugum saman að Guði, ekki fyrir okkur heldur aðra. Hann faldi sig inni í kústaskáp og þótt hann sé hvarvetna er hann bara inni í kústaskáp þegar hann er inni í kústaskáp. Við andvörpuðum og […]
Hugleiðingar um borgarastyrjöld
30. janúar 2024Sífellt fleiri velta fyrir sér möguleikanum á borgarastyrjöld í Bandaríkjunum. Það er ekki einu sinni alltaf háð þeirri forsendu að Trump verði kosinn forseti. Í Bandaríkjunum eru ekki skiptar skoðanir, sundurlyndi og ólík viðhorf heldur ríkir hreint og tært hatur á milli fylkinga. Það skiptist ekki í norður og suður eins og í fyrri borgarastyrkjöld […]
Að vera ekki afleggjari
18. janúar 2024Sjaldan hefur hópur fólks lýst sig jafn hratt hugmyndalega gjaldþrota og það háskólafólk sem tók þátt í mótmælum í Bandaríkjunum gagnvart hernaðaraðgerðum Ísraels gegn Palestínu og Hamas undir slagorði sem vart er hægt að túlka öðruvísi en sem svo að útrýma ætti Gyðingum tafarlaust. Orðið Intífada hefur þá merkingu í dag. Það átti samkvæmt skiltum […]
… einn hinna góðu
14. janúar 2024„Og ég sem er einn hinna slæmu / og vildi breytast í góðan / vildi breytast í góðan / en þú elur með þér ótta.“ Tvítekið. Flamenco í bland við eitthvað annað og óskylt og margt. Lauslega þýtt. Og svo úr öðru lagi línan: „Ég sá hinn blinda lesa strenginn með hinum blinda.“ Ég skil […]
—morð
Þjóðarmorð er ekki gamalt orð og raunar er íslenska þýðingin á því ónákvæm, tekur aðeins til þjóða og ekki kynþátta eða trúarbragða eða annars sem hópur fólks getur átt sameiginlegt. Genocide er sem sé orð frá árinu 1944 og náði ekki fótfestu fyrr en eftir 1948. Annað orðalag með eldri rætur náði fótfestu á sama […]
Orðalisti
11. janúar 2024Stolt Metnaðargirnd Öfund Afbrýði Viðkvæmni Léttúð Feimni Árásargirni Baktal Lygar Hroki Fordómar Farðu yfir orðin í huganum og mátaðu hvert og eitt þeirra við sjálfa(n) þig, ekki aðra. Sýndu svolitla aðgangshörku en þó ekki svo mikla að hún valdi þér skaða því sjálfsgagnrýni er ekki holl í of miklum mæli. Mátaðu orðin við ólíkar kringumstæður […]
Afsökunarbeiðni
9. janúar 2024Þegar eitthvað er rekið ofan í mann sem rangfærsla biðst maður einfaldlega afsökunar. Ég bið Bjarna Bjarnason og alla aðstandendur skáldsögu hans Dúnstúlkan í þokunni afsökunar fyrir að hafa farið í færslu minni frá 1. janúar rangt með að Bjarni hafi í birtum rannsóknum sínum fullyrt að rannsókn Ágústs H. Bjarnasonar hafi verið fyrsta dulsálarfræðirannsóknin […]
Hvað ef?
8. janúar 2024Hvað ef forsendur skáldsögunnar eru brostnar og hún á ekki lengur erindi sem form? Ekki bara vegna minnkandi athyglisgáfu fyrir löngum, flóknum og margbrotnum texta sem getur gert mann auðugri í anda heldur vegna þess að tíminn hefur úrelt hana sem slíka? Á Íslandi eru til svona sjö manns sem gætu haft áhuga á þessu […]
Bókatíðindi
1. janúar 2024Frómt frá sagt fer því fjarri að ég lesi einu sinni helminginn af því sem kemur út fyrir hver jól. „Ert þú ennþá að „fylgjast með jólabókaflóðinu?““ hef ég eftir vinkonu minni, prófessor, sem sagði að eitt helsta skáld Íslendinga hefði sagt þetta við hana fyrir margt löngu. Hjá mér hef ég Armeló eftir Þórdísi […]